Þar sem við væntum þess að allir séu alveg að missa sig af spenningi vegna væntanlegs fagnaðar þá teljum við rétt að veita örlítið meiri upplýsingar varðandi 20. október.
Staður og stund: Fáksheimilið þann 20. október, húsið opnar kl. 19.30 og matur hefst kl. 20.30
Maturinn: Lambakjöt, kjúklingur, salat, grænmeti, gratínkartöflur og hvítlauksbrauð frá Grillvagninum.
Drykkir: Hver og einn sér um sig - enda smekkur manna æði misjafn...
Hreyfingin: Diskótek á staðnum frá 11-4, dinnertónlist af CD með mat.
Að auki verður eitthvað um munnlegt gaman og hláturtaugarnar kitlaðar eins og okkur einum (og fulltrúum 4C) er lagið. Þá mun 4B skreyta salinn af sinni alkunnu snilld - svo öll skilningarvit fá örvun.
Hvað kosta svo herlegheitin? Þar sem mætingin er afar góð kostar þetta frábæra kvöld aðeins 5000 krónur.
Ef einhver er svo óheppinn að hafa ekki enn látið bekkjarfulltrúa sinn vita af sér þá fer nú hver að verða síðastur...
Ekki missa af þessu - hver veit hvenær hinir æviráðnu bekkjarfulltrúar taka sig næst til og skipuleggja svona fagnað!
Bestu kveðjur til ykkar allra - hlökkum til að hitta ykkur
Inga Steindórs 4A
Berglind Bj. 4B
Hanna Guðbjörg 4C
Eyjólfur 4D
Ingibjör Nanna 4E
Ásdís 4R
Rúnar 4S
Björg 4X
og allir hinir sem hafa hjálpað til
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Frábært framtak hjá ykkur. Hlakka til að sjá ykkur öll.
Axel Örn
4E
Mér finnst að Axel Örn eigi að fá bloggorðu á hittingnum þann 20. okt. - fyrir mikið hugrekki!
Berglind
Má ég vera með, eða er þetta bara fyrir þá sem voru fyrir framan heildar nafnalistann í Tirnu?
Stefán Baldur
(e.s. endaði á að senda Emmu SMS í kvöld, en ákvað að þetta væri ekki verri leið til að láta vita að ég vil alveg vera með).
mér finnst að fleiri ættu að skrifa komment hérna. þið eruð nefnilega svo skemmtileg :)
guðrún æ
4b
Held það verði ekkert auðvelt að sitja þarna undir áfengi og ákúrum, vitandi að maður hafi ekkert breyst, þroskast né vitkast á öllum þessum 15 árum. En von er á bótum og betrun áður en 30 ára reunionið rennur upp. Reyni að feika þroskann þangað til.
Mæti með ´88-´92 tónlistina mína eins og síðast en nú ætla ég sko að njóta henna mun meira þar sem ég þurfti að fara snemma síðast út af e-u bolta kjaftæði. Þar sem að það er nánast öruggt að það verði mikið stuð þá stefni ég á að vera síðastur en ekki sístur út.
Kiddi Tomm, var ég ekki í 4R? :)
hvernig setur maður myndir inná þetta, ekki það að ég eigi myndir frá þessum árum á tölvutæku (voru tölvur til þá?) en kannski hægt að setja e-ð skemmtilegt inn.
K.Tomm
Post a Comment