Wednesday, September 19, 2007

Nýjustu upplýsingar

Þar sem við væntum þess að allir séu alveg að missa sig af spenningi vegna væntanlegs fagnaðar þá teljum við rétt að veita örlítið meiri upplýsingar varðandi 20. október.

Staður og stund: Fáksheimilið þann 20. október, húsið opnar kl. 19.30 og matur hefst kl. 20.30
Maturinn: Lambakjöt, kjúklingur, salat, grænmeti, gratínkartöflur og hvítlauksbrauð frá Grillvagninum.
Drykkir: Hver og einn sér um sig - enda smekkur manna æði misjafn...
Hreyfingin: Diskótek á staðnum frá 11-4, dinnertónlist af CD með mat.

Að auki verður eitthvað um munnlegt gaman og hláturtaugarnar kitlaðar eins og okkur einum (og fulltrúum 4C) er lagið. Þá mun 4B skreyta salinn af sinni alkunnu snilld - svo öll skilningarvit fá örvun.

Hvað kosta svo herlegheitin? Þar sem mætingin er afar góð kostar þetta frábæra kvöld aðeins 5000 krónur.

Ef einhver er svo óheppinn að hafa ekki enn látið bekkjarfulltrúa sinn vita af sér þá fer nú hver að verða síðastur...
Ekki missa af þessu - hver veit hvenær hinir æviráðnu bekkjarfulltrúar taka sig næst til og skipuleggja svona fagnað!

Bestu kveðjur til ykkar allra - hlökkum til að hitta ykkur
Inga Steindórs 4A
Berglind Bj. 4B
Hanna Guðbjörg 4C
Eyjólfur 4D
Ingibjör Nanna 4E
Ásdís 4R
Rúnar 4S
Björg 4X

og allir hinir sem hafa hjálpað til

Saturday, September 15, 2007

20. október 2007 nálgast

Nú styttist óðum í 20. okt. og því þykir rétt að reyna að kynda aðeins undir mannskapnum.
Þeir sem til dæmis eiga myndir og gætu hugsað sér að deila þeim með fjöldanum eru hvattir til að koma þeim til bekkjarfulltrúa bekkjarins og þær verða birtar við fyrsta tækifæri.
Þá er auðvitað nauðsynlegt að skrifa athugasemdir og eitthvað skemmtilegt ef þannig stendur á hjá ykkur...

Dagskrá hittingsins og verð fyrir mat og ball mun verða birt við fyrsta tækifæri - því er nauðsynlegt að láta vita hvort þið ætlið að mæta SEM FYRST!

Bestu kveðjur
Fyrir hönd bekkjarfulltrúa
Berglind 4B